útlit og fegurð
The Ward býður upp á fjölmargar meðferðir
fyrir andlit, líkama og hár.
DEMANTSSLÍPUN
Við þessa húðslípun er litlu tæki með demantshaus rennt yfir húðina til að slípa upp dauðar húðfrumur og þær sogaðar upp. Það sem er sérstakt við þessa aðferð er að það má fara miklu nær augunum og öðrum viðkvæmum svæðum andlitsins en í mörgum öðrum slípunum.
Meðferðin vinnur gegn:
Fínum línum og hrukkum
Blettum sem koma með aldrinum
Opinni húð og fílapenslum
Bólum og örum eftir bólur
Húðsliti
Dauflegri áferð húðarinnar
Ójöfnum húðlit og áferð
Brúnum blettum og skellum
Sólarskemmdum
DERMAPEN ÖRNÁLAR
Meðferðin felst í því að farið er með tæki með örfínum nálum yfir húðina. Það örvar kollagenframleiðslu og vinnur þannig gegn öldrunaráhrifum svo sem fínum línum, slappri húð og litabreytingum.
Dermapen getur einnig dregið úr örum og húðsliti, blettum í húð, exemi, opinni húð og óhreinindum.
The Ward notar sérstaka aðferð við notkun dermapen sem tryggir bæði betri árangur og styttri tíma sem húðin þarf til að jafna sig.
DERMAPLANING
Dermaplaning er öflug og örugg meðferð sem fjarlægir dauðar húðfrumur og andlitshár sem stundum halda óhreinindum og fitu að húðinni. Hárvöxtur í andliti getur líka verið til óþæginda við förðun.
Eftir að húðin er skröpuð eru sérstök virk efni borin á hana og tryggir meðferðin að þau eiga greiða leið djúpt inn í húðina. Hún verður silkimjúk og ungleg auk þess að mikið dregur úr bóluörum, fínum línum, blettum og öðrum lýtum. Meðferðin örvar auk þess kollagenframleiðslu sem gerir húðina stinnari og fallegri.
Meðferðin tekur aðeins um 45 mínútur og það þarf engan tíma til að láta húðina jafna sig á eftir. Þó er mælt með að láta tvær til fjórar vikur líða á milli skipta.
EFNAMEÐFERÐ GEGN öldrun
Við bjóðum upp á fljótvirka efnameðferð (chemical peel) sem örvar myndun kollagens og eykur á teygjanleika húðarinnar.
Hún vinnur vel gegn öldrunaráhrifum vegna sólarljóss og afleiðingum öldrunar svo sem slappri húð. Einnig dregur hún úr sjáanlegum örum og fínum línum.
Meðferðin hentar öllum húðgerðum og er sársaukalaus. Hún ertir húðina ekki sýnilega og óhætt er að nota farða strax á eftir. Það þarf því ekki að reikna með tíma til að jafna sig á eftir líkt og með aðrar svipaðar meðferðir.
EFNAMEÐFERÐ GEGN BLETTUM
Uniq-White System er sýrumeðferð (chemical peel) sem vinnur á brúnum blettum í andliti (t.d. lentigo og melasma). Slíkir blettir birtast oft þegar húðin hefur lengi verið óvarin í sól, vegna hormónabreytinga tengdum þungun eða eftir sóríasisútbrot. Venjuleg sár geta einnig skilið eftir svona bletti, t.d. brunasár, skordýrabit, sár eftir bólur eða í raun hvaða áverki sem er. Stundum birtast brúnir blettir eftir lyf sem borin eru á húð eða eftir ákveðnar hársnyrtivörur.
Uniq-White System hentar öllum húðgerðum.
Það sem er einstakt við þessa meðferð er að hún er sársaukalaus og ertir húðina ekki sýnilega. Það þarf því ekki að reikna með tíma til að jafna sig á eftir eins og algent er með sýrumeðferðir gegn brúnum blettum.
pROFHILO MEÐFERÐ
Profhilo® er sérstaklega rakagefandi efni sem vinnur innan frá og gefur húðinni fyllingu og ljómandi yfirbragð. Það er mjög ríkt af hyaluronic sýru sem fyrirfinnst í líkamanum og gegnir því hlutverki að halda húðinni rakri og heilbrigðri.
Meðferðin tekur tvö skipti með fjögurra vikna millibili. Efninu er sprautað inn í 10 sérvalda staði, fimm á hvorri hlið andlitsins. Það leysist smám saman upp í húðinni og örvar hana til að framleiða fjórar gerðir kollagens svo hún verður stinnari og teygjanlegri. Árangurinn sést þó ekki fyrr en eftir seinni meðferð en strax fyrstu vikurnar eftir hana verður húðin greinilega þéttari og mýkri.
SUNEKOS MEÐFERÐ
Kjörin meðferð fyrir þá sem vilja endurheimta unglega húð og koma í veg fyrir merki öldrunar. Þessi meðferð henntar vel við pokum eða þunnri húð í kringum augu. Hún hjálpar líka heilmikið við slappa húð á hálsi og fínum línum í húð.
SunkiKos er náttúrulega efnasamsetning af byggingarefnum sem mynda elastin og collagen. Því er sprautað undir húðina með þeima áhrifum að virkni húðfruma verður meiri og húðin fær raka og fyllingu.
Aðrir kvillar sem Sunekos veitir sjáanlegan árangur við eru fínar línur, hrukkur, öldrun í húð, þurkur, baugar, bóluör og sólskemmdir.
Hvernig virkar Sunekos – SuneKos er vökvi með aminósýrum og hyaluronic sýrum sem sprautað er undir húðina. Sýrurnar örva frumur undir húðinni til að framleiða meira elastín og collagen sem gera húðina fyllri og teygjanlegri.
Á hvaða svæði henntar meðferðin? – Sunekos er öruggt til notkunar á flest svæði líkamans, þar með talið andlit, háls og undir augu.
Aukaverkanir – Eins og með allar meðferðir sem krefjast ísprautunar þá getur komið væg bólga og mar sem jafnar sig fljótt.
Hvenær má búast við sjáanlegum árangri? – Eftir aðeins tvær vikur ættir þú að vera farin að sjá húðina endurnýja sig. Tilgangur meðferðarinnar er að hjálpa líkama þínum til að framleiða og collagen og elastín á náttúrulegan hátt frekar en að nota fyllingar. Þremur vikum eftir meðferð ætti árangurinn að vera orðinn sjáanlegur á húðinni.
Hvað þarf margara meðferðir? – Mælt er með fjórum skiptum með vikumillibili. Það er nauðsynlegt að gera fulla meðferð fyrir hámarksárangur. Til að viðhalda árangri er gott að gera meðferðina á sex mánaða fresti.
Hvað tekur meðferðin langan tíma? – Meðferðin tekur einungis 30 mínútur og því fullkomið skrepp á hádeginu eða eftir vinnu.
aquagold
AQUAGOLD® er einstakt tæki úr 24 karata gulli sem farið hefur sigurför um heiminn. Myndbönd af áhrifavöldum og stórstjörnum hafa streymt inn á Youtube og instagram með fyrir og eftir myndum þar sem árangur tækisins er lofaður hástert. Tæknin á bak við Aqua Gold gerir það að verkum að það er ein öflugasta leiðin til að færa undirlögum húðarinnar þau efni og næringu sem hún þarf.
Um er að ræða örsmáar gullnálar sem sem færa innri lögum húðarinnar sérhannaðan næringar kokkteil. Húðin verður þéttari í sér, svitaholur minni, húðin verður rakameiri, fínar línur minnka og kollagen framleiðsla eykst.
Hægt er að sérsníða aqua gold blöndurnar að þörfum hvers og eins sem gerir meðferðina einmitt svo áhrifaríka. Þessi meðferð er mjög vinsæl hjá stærstu stjörnum samtímans eins og Kim Kardashian og Amanda Paige Williams svo einhver dæmi séu tekin.
FYLLINGAR
Fyllingarefni má nota í andlit og aðra hluta líkamans til að draga úr hrukkum og línum auk þess að endurheimta aftur þá fyllingu sem glatast með árunum. Meðferðin getur líka gagnast vel til að draga úr sýnilegum örum.
VARIR – Þetta er vinsælasta meðferðin til að til að móta varirnar, fá meiri fyllingu og stækka þær.
NEF – Hægt er að leiðrétta skekkju og minni hnúða á nefi án skurðaðgerðar og með ótrúlegum árangri.
AUGU – Fylliefni eru tilvalin til að draga úr baugum og ná fyllingu í kringum augu sem glatast með árunum.
ANDLIT – Hægt er að skerpa á andlitsdráttum og gefa unglegra yfirbragð með fylliefnum.
Fylliefnið er ein gerð hyaluronic sýru sem er náttúrulegt efni sem fyrirfinnst í líkamanum. Það leysist upp með tímanum á eðlilegan hátt.
HÚÐÞÉTTING
Húðþétting (High Intensity Focused Ultrasound) er meðferð sem vinnur gegn öldrun og stinnir og lyftir húðinni.
Heitri orku (58-70 gráðum á celsíus) er beint ofan í undirlag húðarinnar sem hefur þau áhrif að frumurnar byrja að vinna af krafti við að endurnýja sig og örva kollagenframleiðslu. Þar af leiðandi stinnist húðin og “dregst saman” þar sem hún hefur byrjað að síga auk þess að línur minnka.
Meðferðin tekur um 2-3 klukkustundir. Sumir viðskiptavinir finna fyrir hitatilfinningu á meðan meðferðinni stendur. Langflestir viðskiptavinir þurfa aðeins eitt skipti og kemur árangurinn í ljós á tveimur til þremur mánuðum. Á þeim tíma eykst kollagen-framleiðslan mikið og í rúmt ár eftir meðferðina framleiðir líkaminn mun meira kollagen en fyrir hana.
Þetta er sú meðferð sem kemst næst skurðaðgerðum án þess inngrips sem þeim fylgja. The Ward notar eingöngu húðþéttingarvél í hæsta gæðaflokki og hefur sérhæft sig í sérstöku meðferðarplani sem gefur frábæran árangur.
VARALYFTING með húðþéttingu
Oft slaknar á húðinni í kringum varirnar með aldrinum og er húðþétting kjörin til að lyfta þessu svæði og gefa vörunum meiri fyllingu.
Þetta er mjög góður valkostur fyrir fólk sem vill fá lyftingu á varasvæðinu án þess að láta sprauta fylliefnum í varirnar.
Húðþétting er meðferð sem vinnur gegn öldrun og stinnir og lyftir húðinni.
Heitri orku (58-70 gráðum á celsíus) er beint ofan í undirlag húðarinnar og við það byrja frumurnar að endurnýja sig af krafti og framleiða aukið kollagen.
Húð sem var farin að síga stinnist og “dregst saman” ásamt því að línur minnka verulega.
MeSO MEÐFERÐ FYRIR ANDLIT
Í mesomeðferð (mesotherapy) er vítamínum, ensímum og jurtaefnum sprautað inn í miðlag andlitshúðarinnar.
The Ward hefur þróað sínar eigin náttúrulegu blöndur sem gefið hafa einstaklega góðan árangur við að stinna og lyfta andliti og líkama.
Meðferðin er notuð til að
draga úr línum og hrukkum
vinna á brúnum blettum
þétta og stinna húðina
Við bjóðum einnig upp á mesomeðferð fyrir líkamann.
MESO MEÐFERÐ FYRIR LÍKAMANN
Í meso meðferð (mesotherapy) er vítamínum, ensímum og jurtaefnum sprautað á valda staði.
Við notum náttúrulegar blöndur sem við sjálf höfum þróað undanfarin ár.
Þessi meðferð er notuð til að gera slappa húð á líkamanum stinnari og þétta hana.
Við bjóðum einnig upp á meso meðferð fyrir andlit.
PLASMAMEÐFERÐ FYRIR ANDLIT
The Ward býður upp á meðferð með einum besta plasmapennanum sem er á markaðnum í dag.
Plasmapenninn er sérlega áhrifarík leið til að lyfta siginni húð, þétta hana og fríska án aðgerða sem byggja á inngripi í líkamann.
Penninn sjálfur snertir ekki húðina en með sérstakri plasmatækni og hita ertir hann bæði efsta lag hennar og lög sem liggja dýpra.
- Penninn er sérlega góður til að lyfta slappri og siginni húð og gera hana stinna á ný
- Bætir litarhaft og eykur náttúrlegan ljóma
- Eykur teygjanleika
- Öldrunarblettir hverfa að mestu eða alveg
- Fínar línur hverfa að mestu eða alveg
- Meðaldjúpar hrukkur hverfa að mestu eða alveg
- Djúpar hrukkur grynnka og mýkjast, áberandi árangur
- Stuttur tími frá meðferð að sýnilegum árangri
- Stuttur tími í að jafna sig eftir meðferð
PRP MEÐFERÐ FYRIR ANDLIT
PRP stendur fyrir „platelet rich plasma“ sem er í rauninni þinn eigin blóðvökvi meðhöndlaður á ákveðinn hátt.
Fyrst er blóð tekið úr handlegg og það sett í þeytivindu. Við það skilst blóðvökvinn frá rauðu blóðkornunum.
Í blóðvökvanum eru blóðflögur sem innihalda vaxtarhvetjandi efni.
Honum er sprautað inn í húðina þar sem hann örvar hana til að framleiða nýjar frumur.
Fínar línur mildast eða hverfa, andlitið verður fyllra og áferðarfallegra og litarhaftið hraustlegra.
Það er eðlilegt að andlitið glati fyllingu með aldri eða vegna þyngdartaps og PRP meðferðin á sérstaklega vel við í þeim tilfellum.
Einnig er hægt að nota PRP meðferð með svipuðum árangri fyrir líkamann.
PRP MEÐFERÐ FYRIR LÍKAMA
PRP stendur fyrir „platelet rich plasma“ sem er í rauninni þinn eigin blóðvökvi meðhöndlaður á ákveðinn hátt.
Fyrst er blóð tekið úr handlegg og það sett í þeytivindu. Við það skilst blóðvökvinn frá rauðu blóðkornunum.
Í blóðvökvanum eru blóðflögur sem innihalda vaxtarhvetjandi efni.
Við bjóðum upp á PRP fyrir líkamann þar sem slöpp húð á magasvæðinu er meðhöndluð. Húðin byrjar að endurnýja sig og öðlast teygjanleika að nýju.
Við bjóðum líka upp á PRP meðferð fyrir andlit.
LPG LÍKAMSMEÐFERÐ
LPG líkamsmeðferð (Cellu M6 Integral) eða LPG meðferð líkist helst djúpu nuddi og reynist vel sem meðferð gegn gigt og fleiri bólgusjúkdómum.
LPG meðferðin er sérstaklega áhrifarík við appelsinuhúð og til að móta líkamann eða til að vinna á lausri húð.
- Er sogæðanudd sem eykur blóðflæðið í líkamanum
- Losar um stíflur í sogæðakerfinu
- Mýkir upp bandvefin og eykur súrefni til húðarinnar
- Vinnur á appelsínuhúð og erfiðum fitusvæðum
- Stinna húðina og bæta áferð hennar
- Vinnur á vöðvabólgu
- Reynist vel við gigt og öðrum bólgusjúkdómum
- Samþykkt af lýtalæknum eftir svuntuaðgerð
- Losar um eiturefnamyndun og bólgur
VAGINAL rejuvenation
Margar konur kannast við vandamál í leggöngum svo sem þvagleka, þurrk og minni næmni í kynlífi. Orsakir geta verið af ýmsum toga svo sem hækkandi aldur, barnsburður, mikil þyngdaraukning, reykingar, skurðaðgerðir eða legnám.
Þetta og fleira getur leitt til þess að í stað kollagens sem viðheldur stinnleika í vefjunum myndast nýr vefur sem ekki er eins teygjanlegur og eftirgefanlegur. Vaginal tightening er aðgerð án inngrips í líkamann og hentar konum yfir þrítugu. Þessi meðferð er þekkt og viðurkennd innan læknisfræðinnar og er talin örugg auk þess að vera sársaukalaus.
Barnshafandi konum eða konum með barn á brjósti er ekki ráðlagt að fara í þessa meðferð.
Mælt er með að bíða að minnsta kosti í þrjá mánuði eftir barnsburð áður en farið er í meðferðina.
Meðferðin er framkvæmd af hjúkrunarfræðingi.
PRP MEÐFERÐ FYRIR HÁR
PRP stendur fyrir „platelet rich plasma“ sem er í rauninni þinn eigin blóðvökvi meðhöndlaður á ákveðinn hátt. Honum er síðan sprautað inn í hársvörðinn þar sem hann örvar hársekkina.
Bæði reynsla og rannskónir hafa sýnt að við það eykst hárvöxtur, hvert hár um sig þykknar og vöxturinn verður hraðari.
Meðferðin gagnast öllum sem eiga við einhvers konar hármissi að stríða en árangurinn er betri því fyrr sem gripið er inn eftir að hármissir hefst.
Lykillinn að árangri er að fylgja meðferðinni eins og ætlast er til. Best er að koma einu sinni í mánuði fyrstu þrjá til fjóra mánuðina. Eftir það er gott að koma á fjögurra til sex mánaða fresti eftir því hvernig hársvörðurinn hefur tekið við sér.
The Ward hefur margra ára reynslu af þessari meðferð með góðum árangri.
LASER MEÐFERÐ FYRIR HÁR
LLLT er væg laser meðferð sem örvar vanvirka hársekki og stöðvar strax hárlos. Meðferðin eykur hárvöxt og þykkir hárið á 12 mánuðum.
Þessi meðferð hefur reynst vel gegn skallamyndun, blettaskalla og einnig til að örva hárvöxt eftir hárígræðslu
Hún hefur engar aukaverkanir en virkar aðeins svo lengi sem meðferð er haldið áfram.
LLLT er fullkomin meðferð fyrir bæði konur og menn sem stríða við vanda vegna hármissis af einhverju tagi. Hún er mjög einföld, sársaukalaus og án inngrips inn í líkamann.
Það er óhætt að nota þessa meðferð ásamt öðrum hármeðferðum svo sem PRP meðferðinni sem The Ward býður einnig upp á.
MESO MEÐFERÐ FYRIR HÁR
Mesotherapy er áhrifarík aðferð þar sem sérvöldum efnum er sprautað beint í hársvörðinn með fínum nálum.
Meðferðin endurvekur hárvöxt með því að virkja hársekki sem hægt hafa á sér eða eru jafnvel alveg hættir að framleiða hár. Því má búast við að sjá hárvöxt á ný þar sem hann var alveg horfinn.
Hún reynist vel til að draga úr hárlosi, þykkja og styrkja hár og til að vinna gegn skallamyndun.
Meðferðin örvar líka kollagenmyndun og eykur á teygjanleika hársvarðarins en þessir eiginleikar húðarinnar minnka einmitt með aldrinum.
Ferlið er sársaukalítið og þarfnast ekki deyfingar. Það er hættulaust og fólk jafnar sig mjög fljótt.
EMSCULPT
EMSCULPT er ný byltingarkennd aðferð til mótunar og styrkingar á magasvæði, bakhluta (rassi), handleggjum og fótleggjum. Þessi svæði líkamans eru sérstaklega erfið þegar kemur að því að losna við fitu og byggja upp vöðva. EMSCULPT er öflug meðferð sem gagnast bæði konum og körlum við að ná æskilegum og vel sýnilegum árangri.
Meðferðin byggist á því að highly focused electromagnetic energy er beint á svæðið sem verið er að meðhöndla hverju sinni. Við það dragast vöðvarnir saman á sérstakan hátt sem ekki gerist við venjulegar líkamsæfingar. Í kjölfarið byrja vöðvarnir að byggjast upp og fita á svæðinu eyðist hraðar.
- Mótar og stinnir handleggi, fótleggi og kvið
- Fyrsta og eina þekkta rasslyftingin án skurðaðgerðar
- Byggir upp vöðva og brennir fitu án skurðaðgerðar
- Engan tíma þarf til að jafna sig eftir meðferð
- 16% aukning á vöðvamassa að meðaltali
- 19% minnkun á fitu að meðaltali
- Eins og 20.000 uppsetur á 30 mínútum meðan þú liggur kyrr
- Viðurkennt af FDA í Bandaríkjunum
- CE vottað í Evrópu (staðall fyrir lækningatæki)
SAMSETTUR PAKKI, ÝMSAR MEÐFERÐIR
Við bjóðum upp á ýmsar samsetningar meðferða sem geta tekið mörg ár af andliti þínu. Hringdu til að fá upplýsingar um hvaða meðferðir henta þér og til að fá verð.